Laster Arrangementer

« Alle Arrangementer

Fjallgönguvika (Islandsk Fjellturleir) 2023

25. september - 1. oktober

€ 435
Dette er en islandskspråklig leir som arrangeres på Centro Sarepta, i samarbeid med idrettsforeninga til KFUM og KFUK på Island. Opplegget vil tolkes mellom norsk og islandsk.

 

Sportfélag KFUM og KFUK kynnir í samstarfi við Norsku Biblíu- og Kristniboðsmiðstöðina Centro Sarepta íslenska fjallgönguviku á Spáni. 

 

Við gerum ráð fyrir að þátttakendur fljúgi til Alicanteflugvallar sem er í 1 klst. akstursfjarlægð frá Alfaz del Pi, þar sem þátttakendur munu gista, stefnt er að því að þeir sem vilja fljúgi saman í beinu flugi frá íslandi og akstur til og frá flugvelli verður þá sameiginlegur. Samverur fara fram á íslensku eða túlkað yfir á íslensku úr norsku.

Gönguvikan haustið 2023 verður 25. september – 1. október. 

Fararstjórar:
Fararstjóri frá Íslandi verður Pétur Ásgeirsson
Fararstjóri fyrir hönd Centro Sarepta, Arild Melberg og Johannes Kleppa

Dagskrá fyrir hvern dag:
08:30 Morgunverður, nesti fyrir daginn smurt af morgunverðarborðinu
09:10 Morgunsamvera og bæn
09:30 Biblíulestur með Johannes Kleppa
10:30 Fjallganga með fararstjóra. Nákvæm tímasetning fyrir upphaf og lok göngu getur verið breytilegur frá degi til dags.
(12:30 Hádegisverður fyrir þá sem ekki fara í fjallgöngu)
17:30 Kvöldverður
19:30 Kvöldsamkoma med Jan-Tore Olsen

Kaffi og snakk á eftir kvöldsamkomuna.

Allar fjallgöngurnar eru frjálsar til að taka þátt fyrir þáttakendur og það er alveg mögulegi að taka hvíldardag eða velja að gera eitthvað annað en að fara í fjallgöngu. 

Fjallgönguvikan byrjar með kvöldverði kl. 17:30 á mánudegi, og fyrsta fjallgangan verður eftir morgunverð á þriðjudegi. Fjallgönguvikunni lýkur með morgunverði á sunnudegi.

Verð: € 435,-
Innifalið er gisting í 6 nætur í fjölmannaherbergi með allt að fjórum rúmum, innifalið er fullt fæði.
Auka sólarhringur fyrir eða eftir fjallgönguvikuna kostar € 61,- á mann.

Óskir þú eftir að vera meira útaf fyrir þig stendur til boða að fá einsmanns eða tveggja manna herbergi sem er þá gegn hærra verði og það stendur til boða svo lengi sem það er laust.
Gisting í tveggjamanna herbergi: € 495,- á mann. (€ 69,- fyrir auka sólarhring)
Gisting í einsmanns herbergi: € 660,- á mann. (€ 92,- fyrir auka sólarhring)

Öll verð gilda fyrir einn, og innifalið er þáttaka í gönguvikunni og ferðum því tengt, ásamt öllum auglýstum máltíðum í gönguvikunni.

Spurningar og skráning: peturasgeirsson@hotmail.com 

Feðgarnir Arild Melberg og Eiríkur Arildsson Melberg reka þessa miðstöð á Spánni fyrir hönd kristniboðsfélaginu Misjon Sarepta, en þeir tala báðir íslensku, hafa verið mikið á Íslandi og Arild er giftur íslenskri konu og hefur tekið þátt í starfi S.Í.K. og KFUM og KFUK á Íslandi.

Detaljer

Start:
25. september
Slutt:
1. oktober
Kostnad:
€ 435
Kategorier for Arrangement:
,

Arrangører

Sportfélag KFUM og KFUK
Centro Sarepta

Sted

Centro Sarepta
Carrer de Llevant 10
03580 L'Alfàs del Pi, Alicante 03580 Spania
+ Google-kart
Telefon:
+34 744 609 904
View Sted Website